Fluttur...

Haukurinn hefur sökum anna ekki verið nægilega duglegur í bloggskrifum, en þar eð lokaverkefninu hefur verið skilað og próf er yfirstaðið og staðist þá er hlaupið kapp í kinnar Hauksins og hann hyggst ráða bót á bloggleysinu.

Hinsvegar, þar eð ég er kominn með nóg af morgunblaðsblogginu - þar spila inn margar ástæður - þá hef ég flutt mig um set yfir á wordpress.com.

Því er hin nýja bloggslóð eftirfarandi: http://haukurinnst.wordpress.com/

Vona að þetta eigi eftir að gagnast lesendum í framtíðinni.

Með kveðju,Haukurinn


"I think we agree, the past is over"


"I still have goosebumps from when Klingsor summoned Kundry with a terrible cry, and ordered her to seduce Parsifal: 'Ha! Er ist schön, der Knabe!'"

Haukurinn heldur áfram einsetu sinni og útlegðarmótmælum. Kannski það sé barasta ágætt, þ.e. að venja sig af endalausum moggabloggum. Kannski var þessi breyting 'bankahrunið í bloggheimum'. Allavega Haukurinn ætlar ennfremur að halda áfram að fleygja hér inn jútjúb hlekkjum eins og hann eigi lífið að leysa.

Næstir á dagskrá eru finnsku þungmálmstónlistarmennirnir í Apocalyptica sem eru klassískt tónlistarmenntaðir og spila eingöngu á selló. Þeir hafa í gegnum tíðina sérhæft sig að nokkru leyti í því að útsetja tónlist snillinganna í Metallica nánast einvörðungu fyrir sellóin sín - þó svo þeir hafi í seinni tíð bætt við áslátturshljóðfæraleikara þ.e. trommara. Verði lesendum að góðu. 

Fight Fire with Fire - Metallica

 

Nothing Else Matters - Metallica

One - Metallica

Fade to black - Metallica

Master of puppets - Metallica


"Imitation is the sincerest form of flattery..."

Haukurinn hefur enn ekki gert upp hug sinn um hvort hann hyggst samþykkja kröfu mbl manna um birtingu fulls nafns hans á síðunni - þar eð hann telur það í engu nauðsynlegt sökum þess að þegar hann festi sér bloggið gjörði hann svo undir sinni eigin kennitölu. Því mun hann í einhvern tíma halda áfram að skrifa í sjálfskipaðri útlegð.

Haukurinn heldur mikið upp á þá Metallica drengi sem og hefur hann mikið gaman af blágrasstónlist. Því þóttist hann himinn hafa höndum gripið þegar liðsmenn Iron Horse (Stálhestsins) urðu 'á vegi hans' á dögunum. Þessir mætu tónlistarmenn hafa tekið að sér að gera svokallaðar coverplötur, þar sem þeir hafa m.a. útsett lög Ozzy Osbourne, Guns N' Roses, Led Zeppelin og Metallica í blágrassstíl.

Haukurinn ákvað því, að deila þessari snilld með lesendum sínum - okkur öllum til góða.

 Fuel - Metallica

Enter Sandman - Metallica

Unforgiven - Metallica

Crazy Train - Ozzy Osbourne


"Look out....he's got a nug...."

Úff. Ég veit vel að maður á ekki endalaust að vera að gagnrýna stafsetningu og frágang, en þetta fer að verða þreytandi. Er enginn staðall á vinnubrögðum hjá vefútgáfu Morgunblaðsins? Hefur þar enginn aðgang að ritvinnslu-, beyginga-og samheitaorðasafnsforritinu Púka líkt og bloggarar vefsins hafa?

Svo er þessi 'grein' algerlega full af setningarfræðilegum martröðum, t.d.:

Tvíburarnir Karissa og Kristina Shannon, sem eru nítján ára, hafa nú tekið sess þeirra Wilkinson og Madison á Playboy-setrinu og segir Marquardt stemninguna mjög breytta„Stemningin á setrinu er allt önnur. Ekki slæm, bara öðruvísi. Ég er ekki mikið heima,” segir hún.

Hver kennir þessu fólki íslensku? Er verið að nota þýðingarforrit af netinu? Jæja, nóg komið af þrasi. Vonandi gengur allt betur á Palyboy setrinu. Ég vildi samt óska þess að fólk bæri aðeins meiri virðingu fyrir eigin máli og málnotkun.

 


mbl.is Söknuður á Playboy-setrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"That's why I'm gonna let you go. I'm gonna give you to the count of three to get your lousy, lyin', low-down, four flushing carcass out my door.."

Ætli við sem íbúar landsins getum farið fram á álíka tilkynningu frá okkar nágrannaríkjum? Það er, þar sem farið væri fram á það að Davíð Oddson, Geir H. Haarde, o.fl. færu samstundis frá völdum þar eð þessir aðilar bæru ábyrgð á þeirri skegg- og skálmöld sem nú ríkir á Íslandi.

Það væri allavega endanleg staðfesting á stöðu landsins, einkum gagnvart öðrum bananalýðveldum.


mbl.is Norrænu ríkin vilja Mugabe frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"'All you need is love', John Lennon, smart man, shot in the back very sad...of course he also said 'I'm the walrus' so what do I know...."

Jæja. Mikið er gaman að sjá hvað íslenskir menntaskólanemendur hafa margt nýtilegt að gera í jólafríinu sínu. Mótmæli versus skrílslæti? Vissulega voru það aðeins nokkrir svartir sauðir, með svartar grímur að vanda, sem létu undan skemmdarfýsn sinni, og brutu rúður með offorsi, en er virkilega hægt að halda því fram að þessi skemmdarverk hafi enga tengingu haft við hina einstaklingana sem tóku þátt í mótmælunum? Er sem sagt hægt að firra sig ábyrgð með því að kenna nokkrum fáum um? Sem sagt, það er enginn sem stýrir og stjórnar hópnum? Því er enginn sem ber ábyrgð? Það hjá hópi fólks sem fer um víðan völl og krefst þess að aðrir beri ábyrgð á gjörðum sínum. Ja hérna hér....

Enn halda mótmælendur áfram grímubúningaleik sínum og finnst mér það verr og miður. Ég hef heyrt röksemdirnar þess efnis, að hér sé fólk að fá umheiminn til að einblína á málstaðinn ekki persónur. Þær finnast mér veikar á velli. Fólk felur sig vegna þess að það vill ekki standa persónulega að baki eigin málstað. Það er heigulsháttur. Svona í framhjáhlaupi, þá hef ég reyndar lesið margar athugasemdir á ýmsum bloggvefjum þar sem stuðningsmenn þessara aktivista hrauna yfir bloggara sem mótmæla málstað þeirra og rita undir leyninafni eða pennanafni. Hver er munurinn?

Haukurinn er þá væntanlega líka heigull. En hann ber þá væntanlega heldur enga ábyrgð á neinu sem hann gerir eða segir. Nákvæmlega eins og grímuklæddir skemmdarvargar.

P.s. Hér ber að taka fram að Haukurinn styður heilshugar við mótmælin, hvort sem er þau sem fram fara hvern laugardag á Austurvelli eða þau sem fara fram í minni hópum á vettvöngum vítt um borgina. En hann getur engan veginn, samvisku sinnar vegna, stutt skemmdarverk og ofbeldi.


mbl.is Mótmæli halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"All that is necessary for the triumph of evil is that good men do nothing...."

Haukurinn hefur skrifað um það áður að ef einhvern tímann var þörf þá er nú nauðsyn. Flest okkar hafa möguleika á að láta eitthvað af hendi til styrktar þessum hjálparstofnunum. Það þarf ekki að vera reiðinnar býsn af fjármunum, því eins og við vitum þá gerir margt smátt eitt stórt.

Haukurinn hefur sjálfur óskað eftir því að hans nánustu styrki frekar þetta góða fólk með því að leggja inn á þessar hjálparstofnanir fremur en að auka á hans ört stækkandi hrúgu af neysluvarningi.

Þurfum við virkilega á einum fleiri geisladisknum, konfektkassanum, o.s.frv. að halda?

 


mbl.is Fólk grætur fyrir framan okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"When everybody trying to sleep, I'm somewhere making my midnight creep. Every morning the rooster crow, something tell me I got to go. I am a back door man.."

Haukurinn dáist að þessari þróun í mótmælum anarkista og annarra velunnara þeirra, þ.e. að þeir skuli virðast viljugir til einhverskonar samvinnu við lögreglu þegar kemur að mótmælum þeirra. Sömuleiðis er gleðilegt að sjá fólk standa upp fyrir málstað sínum án grímu. Þetta endalausa grímuball hefur hingað til farið ærlega í taugar Hauksins.

Magga Stína undrast friðsemi Íslendinga en hún var nú líka Risaeðla forðum daga. Haukurinn efast alls ekki um friðsemi Íslendinga, þó svo vissulega séu alltaf til svartir og vitgrannir sauðir inn á milli. Grjótkast og annað ofbeldi elur ekkert annað af sér en meira ofbeldi og hörku. Aukinheldur myndi málstaðurinn fljótlega fara fyrir bí ef gripið yrði til ofbeldis.

Merkilegt að sjá Einar K. kvarta yfir þessum mótmælum. Skildi hann hafa mætt á blankskóm og því átt erfitt að fóta sig í snjónum? Ennfremur er það skondið þar eð hann er nú ráðherra sem á víst að styðja aukið frelsi - en það á víst einungis við um aðalinn ekki pöpulinn. Það er ekki mikil harka fólgin í því að neyða ríkisstjórnina til þess að ganga inn um bakdyrnar. Einungis einurð af hálfu mótmælenda.

 

 


mbl.is Ríkisstjórnin inn um bakdyrnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"My cousin-in-law, whose heart is bigger than his brain...is innocent...."

Jæja, það hlaut að vera að hinn skoski jólasveinn léti í sér heyra. Það þrátt fyrir að hafa lofað því fyrr í ár að hætta algerlega að ræða við fréttamenn. Haukurinn var eiginlega að vona að rauðnefjaði jórturleðursgleypirinn myndi halda kjafti örlítið lengur. En það er erfitt þegar leikmenn liðsins eru á mörkum þess að vera þroskaheftir.

Það sem hann sagði var:

"I am not going to discuss Wayne Rooney. You press guys have created most of it. You are not getting anything from this club at all on Wayne Rooney. That is it, finished."

Það var sem sagt pressunni að kenna að Rooney traðkaði á bringu Kaspers Risgård. Fyrir utan eitt stykki stimplun á kálfa plús endalaus olnbogaköst í höfuðhæð.

Auðvitað. Af hverju að kenna einstaklingnum um þegar hægt er kenna því um að pressan birti atvikið opinberlega?

Ferguson er fífl.


mbl.is UEFA ákveður á mánudag um sekt eða sakleysi hjá Rooney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband